Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. júlí 2021 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ægir kynnir til leiks tvo nýja leikmenn (Staðfest)
Alexander Aron Davorsson.
Alexander Aron Davorsson.
Mynd: Raggi Óla
Ægir, sem vann frábæran sigur á Augnablik í toppbaráttuslag í 3. deildinni í gær, hefur kynnt til leiks tvo nýja leikmenn sem félagið samdi við í þessum félagaskiptaglugga.

Á dögunum lenti Nemanja Lekanic á Íslandi. Hann er Serbneskur kantmaður og bakvörður sem spilaði 29 leiki í bosnísku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Nemo eins og hann er kallaður spilaði sinn fyrsta leik fyrir Ægi í 3-0 sigrinum á Augnablik í gær og stóð sig mjög vel, eins og allt liðið. „Hlökkum til að sjá fleiri leiki með honum í gulu treyjunni!" segir í tilkynningu Ægis.

Alexander Aron Davorsson skipti þá yfir í Ægi á dögunum frá Hvíta Riddaranum. Alexander er sóknar- og miðjumaður með mikinn karakter og mikla reynslu sem hann mun miðla til yngri leikmanna liðsins.

Alexander Aron á marga leiki að baki í Lengjudeldinni og 2. deildinni og því er það mikill fengur fyrir Ægi að fá hann.

Alexander tók þátt í sínum fyrsta leik fyrir Ægi gegn Hetti/Huginn á dögunum og spilaði svo aftur í sterkum 3-0 sigri gegn Augnablik í gær.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner