Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. júlí 2021 07:30
Victor Pálsson
Kessie ekki á förum frá Milan
Mynd: Getty Images
Franck Kessie er ekki á förum frá AC Milan samkvæmt yfirmanni knattspyrnumála félagsins, Paulo Maldini.

Fjölmörg lið horfa til Kessie en Inter Milan, Tottenham og Arsenal hafa öll verið orðuð við hans þjónustu.

Kessie er afar mikilvægur hlekkur á miðju Milan en hann kom fyrst til félagsins frá Atalanta árið 2017.

Kessie samdi fyrst við félagið á láni en ítalska liðið keypti hann svo endanlega fyrir tveimur árum.

„Hann verður hluti af Milan í framtíðinni, við erum að vinna í framlengingu," sagði Maldini.

Kessie skoraði 14 mörk í 50 leikjum fyrir Milan á síðustu leiktíð en hann tekur vítaspyrnur liðsins.

Athugasemdir
banner
banner