Þórir Jóhann Helgason er genginn í raðir ítalska félagsins Lecce frá FH. Hann hefur verið kynntur opinberlega sem leikmaður ítalska félagsins.
Þórir skrifar undir fjögurra ára samning með möguleika á fimmta árinu.
Þórir skrifar undir fjögurra ára samning með möguleika á fimmta árinu.
Samningur Þóris við FH átti að renna út í lok árs en hann er tvítugur miðjumaður sem kom til FH frá Haukum árið 2018.
Þórir verður 21 árs í september. Hann á að baki einn A-landsleik og sextán leiki fyrir yngri landsliðin.
#Benvenuto Thórir Jóhann Helgason #avantilecce #onoraquestamaglia pic.twitter.com/ML2xqEK3Fw
— U.S. Lecce (@OfficialUSLecce) July 16, 2021
Athugasemdir