KR hefur áhuga á Omar Sowe

Skoraði gegn KR í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði gegn KR í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net áhuga á framherjanum Omar Sowe hjá ÍBV sem er með lausan samning eftir tímabilið.
Sowe er að koma til baka eftir krossbandaslit og hefur hann spilað sex leiki í deildinni og skorað í þeim þrjú mörk. Fyrsti byrjunarliðsleikur Sowe eftir meiðslin var gegn KR í síðustu umferð og skoraði Sowe fyrsta mark leiksins.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, þekkir Sowe vel en hann fékk hann til liðs við Breiðablik frá New York Red Bulls tímabilið 2022.

Breiðablik varð Íslandsmeistari um haustið og skoraði Sowe tvö mörk í 17 leikjum með Blikum það sumar.
Omar er 25 ára gambískur framherji. Hann gekk til liðs við Leikni eftir eitt ár með Breiðabliki. Hann var sóttur til Vestmannaeyja fyrir síðasta tímabil.