Maður dagsins á HM - Kann svo miklu meira en að gera Messi glaðan

Messi faðmar Scaloni eftir sigurinn á Englandi.

Mynd: EPA

Scaloni er að skrá sig á spjöld fótboltasögunnar. Að svo mörgu leyti vanmetinn þjálfari.

Í langri sögu HM hefur aðeins einn þjálfari afrekað að vinna mótið tvisvar; Vittorio Pozzo sem stýrði Ítalíu til gullverðlauna 1934 og 1938. Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, getur fetað í hans fótspor á sunnudaginn.
Scaloni hefur fengið ósanngjarnan stimpil og stundum talað eins og hans eini hæfileiki sé að halda Messi ánægðum. En Scaloni hefur unnið HM og tvívegis Copa America með Argentínu og gæti unnið sitt annað heimsmeistaramót á sunnudaginn.

Scaloni útþjálfaði Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, með breytingunum sem hann gerði í 2-1 endurkomusigri Argentínu í undanúrslitunum.
„Ég er nánast orðlaus. Þvílík hamingja fyrir okkar þjóð og okkar fólk. Og önnur mögnuð ánægja fyrir þennan hóp sem hreinlega kunna ekki að tapa. Það er svo erfitt fyrir fólk að skilja hvað leikmenn okkar hafa gefið. Það er svo magnað," sagði Scaloni eftir sigurinn gegn Englandi.
„Við erum algjörlega einstakir. Þetta er enginn hroki, þetta er bara hjarta. Svo margir mættu hingað til að styðja okkur og fyrir það er ég svo þakklátur. Þegar menn klæðast þessari treyju gefa þeir nákvæmlega allt mögulegt, alveg til enda. Það er aldrei slakað á."
Argentína mætir Spáni í úrslitaleik HM á sunnudaginn klukkan 19:00.
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Lionel Messi and Scaloni after the final whistle ???? pic.twitter.com/i3zXWx8vBP
— ???? (@_bernacleboy) July 15, 2026