Fotbolti.net
16.07.26 - 18:32
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Olise vill vera áfram hjá Bayern

Olise vill vera áfram hjá Bayern
Canon

Mynd: EPA

Franski vængmaðurinn Michael Olise vill vera áfram hjá Þýskalandsmeisturum Bayern München en þetta segir þýski miðillinn Sky.
Spænskir miðlar hafa fullyrt að Michael Olise vilji yfirgefa Bayern eftir stórkostlegt síðasta tímabil.

Samkvæmt þeim dreymir Frakkann um að ganga til liðs við Real Madrid og sé hann tilbúinn að gera allt sem í hans valdi stendur til að komast þangað. Þýskir miðlar segja hins vegar allt aðra sögu.

Sky greinir frá því að Olise hafi tjáð stjórnendum Bayern að hann vilji sýna félaginu hollustu og vera áfram í Munchen. Hann hafi því ekki óskað eftir félagaskiptum til Real Madrid.

Olise er samningsbundinn Bayern til ársins 2029 og engin riftunarákvæði eru í samningi hans. Þýsku meistararnir vilja nú hefja viðræður við hann um nýjan og endurbættan langtímasamning.

Olise, sem er 24 ára, hefur komið að 66 mörkum í 66 deildarleikjum með Bayern frá því hann gekk til liðs við félagið frá Crystal Palace fyrir tveimur árum.

Hann var valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og í liði ársins eftir að hafa farið á kostum með Bayern. Þessi silkimjúki vængmaður kom að 53 mörkum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

Olise hefur einnig leikið stórt hlutverk með Frökkum á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann hefur lagt upp fimm mörk og er sem stendur stoðsendingahæsti leikmaður mótsins, einni stoðsendingu á undan Lionel Messi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.