Rogers næstur inn hjá Arsenal

Arsenal ætlar að kaupa Morgan Rogers

Mynd: EPA

Arsenal ætlar að kaupa Morgan Rogers

Mynd: EPA
Arsenal hefur gengið frá samkomulagi við gríska landsliðsmanninn Christos Tzolis frá Club Brugge og ætlar Englandsmeistararnir núna að setja allt púður í að landa Morgan Rogers frá Aston Villa.
Fabrizio Romano og David Ornstein greina báðir frá því að Tzolis sé á leið til Arsenal frá Club Brugge fyrir 40 milljónir evra.
Gríski vængmaðurinn kemur inn í leikmannahóp Englandsmeistaranna í stað Leandro Trossard, sem gekk nýverið til liðs við Besiktas í Tyrklandi.
Romano segir Arsenal nú ætla að færa viðræðurnar um Morgan Rogers á næsta stig eftir að samkomulag náðist um kaupverðið á Tzolis.
Arsenal hefur þegar rætt við fulltrúa Rogers og eru þær viðræður sagðar komnar vel á veg. Næsta skref er að ná samkomulagi við Aston Villa, sem er sagt verðmeta enska landsliðsmanninn á 130 milljónir punda.
Fari Rogers fyrir þá upphæð yrði hann dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Alexander Isak á metið eftir að Liverpool keypti hann frá Newcastle United fyrir 125 milljónir punda á síðasta ári.
Arsenal hefur einnig fylgst með Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain, en engar formlegar viðræður hafa átt sér stað. Liverpool hefur einnig mikinn áhuga á Barcola sem vill komast frá PSG í sumar.