Fotbolti.net
16.07.26 - 17:45
Brynjar Ingi Erluson

Sverrir Ingi sleit krossband

Sverrir Ingi verður lengi frá

Sverrir Ingi verður lengi frá

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sverrir Ingi Ingason, fyrirliði Panathinaikos í Grikklandi, verður frá keppni næsta hálfa árið hið minnsta eftir að hafa slitið krossband í æfingaleik gegn Rapid Vín í gær.
Landsliðsmaðurinn var að spila síðasta æfingaleik Panathinaikos á undirbúningstímabilinu áður en liðið hefur leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Leikið var tvisvar sinnum 60 mínútur í Vín í Austurríki og kom Sverrir inn á í síðari hluta leiksins.

Undir lokin steig hann illa niður þegar hann ætlaði að fara inn í einvígi við leikmann Rapid Vín og féll í kjölfarið í grasið. Sverrir lá sárþjáður á vellinum áður en hann var aðstoðaður af velli.

Panathinaikos hefur nú staðfest alvarleika meiðslanna á samfélagsmiðlum. Sverrir þarf að gangast undir aðgerð og verður frá keppni í að minnsta kosti sex mánuði.

Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir Sverri og Panathinaikos, sem og íslenska landsliðið þar sem hann gegnir lykilhlutverki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.