Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. ágúst 2022 17:50
Elvar Geir Magnússon
Hauge lánaður til Gent (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Norðmaðurinn Jens Petter Hauge hefur verið lánaður frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt til Gent í Belgíu, út tímabilið.

Í fyrra gekk hann í raðir Frankfurt frá AC Milan og gerði samning til 2026.

Hauge er 22 ára sóknarmiðjumaður og vængmaður sem var hjá Bodö/Glimt og hefur leikið tíu landsleiki fyrir Noreg.

Gent er ríkjandi bikarmeistari í Belgíu og hefur hafið nýtt tímabil á tveimur sigrum og tveimur jafnteflum í fyrstu fjórum leikunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner