Fotbolti.net
16.08.22 - 18:06
Ívan Guðjón Baldursson

Tottenham kaupir Udogie (Staðfest) - Lánaður til Udinese

Tottenham kaupir Udogie (Staðfest) - Lánaður til Udinese
Canon

Mynd: EPA

Tottenham er búið að staðfesta kaupin á Destiny Udogie, 19 ára vinstri bakverði Udinese sem fer aftur til ítalska félagsins að láni út tímabilið.

Antonio Conte hefur miklar mætur á Udogie sem sprakk út í Serie A á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 5 mörk í 35 leikjum með Udinese.

Udogie er afar öflugur, sterkur og snöggur leikmaður sem á rúmlega 30 leiki að baki fyrir yngri landslið Ítalíu.

Tottenham er talið borga um 20 milljónir punda fyrir Udogie sem skrifar undir samning til 2027. Hann mun koma í hópinn hjá Tottenham fyrir næstu leiktíð og berjast við Ryan Sessegnon og Ivan Perisic um byrjunarliðssæti. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.