Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. ágúst 2022 22:22
Ívan Guðjón Baldursson
U15 stelpurnar rúlluðu yfir Færeyjar
U16 landsliðið í sumar.
U16 landsliðið í sumar.
Mynd: KSÍ

Færeyjar U15 1 - 5 Ísland U15
Mörk Íslands:
Katla Guðmundsdóttir (2)
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
Rakel Eva Bjarnadóttir
Berglind Freyja Hlynsdóttir


Stelpurnar í U15 ára landsliði kvenna heimsóttu Færeyjar og unnu stórsigur í æfingaleik í dag.

Liðin mætast í tveimur æfingaleikjum rétt eins og strákaliðin í sama aldursflokki.

Íslensku strákarnir unnu 4-0 fyrr í dag og reyndist það gott viðmið fyrir stelpurnar sem unnu glæsilegan 5-1 sigur.

Katla Guðmundsdóttir var atkvæðamest í liði Íslands með tvennu og þá skoruðu Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, Rakel Eva Bjarnadóttir og Berglind Freyja Hlynsdóttir allar eitt mark.

Liðin mætast öðru sinni á fimmtudag kl. 14:00 á Tórsvelli í Tórshavn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner