Gareth Bale er sterklega orðaður við Tottenham og Darren Anderton, fyrrum leikmaður Tottenham, segir að hann sé einmitt leikmaðurinn sem liðið þurfi á að halda.
„Eftir að hafa horft á tapleikinn á sunnudaginn, þetta er einmitt leikmaðurinn sem liðið þarf. Einhver sem getur unnið leiki með smá töfrum og sköpunarmætti," segir Anderton.
„Þetta hlýtur að henta öllum aðilum. Að snúa aftur á stað þar sem þú ert elskaður liggur beint við. Hann hefur borið landslið Wales á herðunum, hann bar Tottenham liðið á herðunum þegar hann var þar, hann vinnur leiki upp á sitt einsdæmi. Hann er einmitt það sem Spurs þurfa á að halda núna."

Jonathan Barnett umboðsmaður Bale hefur sagt að viðræður séu í gangi um að leikmaðurinn fari aftur til Tottenham og að þær miðist í rétta átt.
Þessi 31 árs vængmaður og gekk í raðir Real Madrid.
Athugasemdir