Lárus Orri: Gaman að sjá hvað þessar frægu xG tölur segja


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann 5-3 sigur á ÍA í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar karla á Meistaravöllum. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Lárusi Orra, þjálfara ÍA, eftir leikinn.
„Ég er svekktur að hafa tapað þessum leik. Mér fannst við byrja leikinn mun betur en þeir og fannst við betra liðið framan af fyrri hálfleiknum. Svo í seinni hluta fyrri hálfleiks þá leyfðum við þeim að stíga aðeins of mikið upp og vorum í vandræðum með leikmennina hjá þeim í millisvæðunum. Við löguðum það í hálfleik og heilt yfir í seinni hálfleik þá fannst mér við vera í ágætis stjórn, skrítið að segja það eftir að hafa fengið fimm mörk á okkur. Svekkjandi að fara ekki með neitt út úr þessum leik og það verður gaman að sjá hvað þessar frægu xG tölur segja.''
ÍA byrjaði leikinn af feikilega miklum krafti og óðu í færum fyrsta korterið.
„Við byrjum alltaf af miklum krafti. Þetta er það sem við gerum, við stígum upp og við pressum eins og við getum og við gerum það hér eins og við gerum annars staðar. Það gekk vel í dag og við vorum komnir yfir og þá skora þeir mark sem verður gaman að sjá hvort hafi verið rangstaða eða ekki. Heilt yfir þá var það færanýtingin og pínu barnaskapur sem fóru með þennan leik.''
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.



