Fotbolti.net
23.06.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Landsliðsþjálfari Argentínu: Þreytandi að tala alltaf um Messi

Landsliðsþjálfari Argentínu: Þreytandi að tala alltaf um Messi
Canon

Mynd: EPA

Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, sagði að það væri þreytandi að tala um Lionel Messi eftir að hann skoraði bæði mörkin í sigri á Austurríki í gær.

Með þessum mörkum bætti hann met Miroslav Klose og er orðinn markahæstur í sögu HM með 18 mörk. Brasilíska landsliðskonan fyrrverandi, Marta, átti metið yfir flest mörk skoruð á heimsmeistaramóti en Messi sló einnig það met.
„Þegar liðið átti erfitt uppdráttar án boltans vann hann, honum tókst að stela boltanum. Það er ástæða fyrir því, hann hefur skuldbindingu og þetta er það sem hann skapar. Ég hef ekki fleiri orð til að tala um Leo. Það er þreytandi að tala alltaf um hann," sagði Scaloni.

Argentína mætir Jórdaníu í lokaleik riðilsins. Argentína er komið áfram og spurning hvort Messi fái tækifæri til að bæta við mörkum gegn Jórdaníu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.