Brynjar Ben spáir í leiki dagsins á HM

Brynjar Benediktsson.

Mynd: Aðsend

Ronaldo mætir Úsbekistan.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Brynjar Benediktsson.

Mynd: Aðsend
Það eru fimm leikir á HM næsta sólarhringinn. Hvað gera Cristiano Ronaldo og félagar í Portúgal? Hvaða gera Englendingar eftir flottan leik gegn Króatíu?
Við fengum Brynjar Benediktsson, annan stofnanda Soccer & Education USA, sem aðstoðar íslenska nemendur við að fá íþróttastyrki í bandarískum háskólum, spáir í leikina að þessu sinni.

Noregur 2 - 1 Senegal (00:00)
Noregur koma inn vel heitir eftir 4-1 sigur og Haaland er í Víkingastuði. Gaurinn hefur skorað í 11 leikjum í röð með Noregi og 57 mörk í 51 landsleik. Senegal hinsvegar alltaf skemmtilegir þrátt fyrir að fyrsti leikurinn hjá þeim sýndi það ekki. Það er meðbyr með Noregi þannig þeir taka þetta 2-1.
Jórdanía 0 - 0 Alsír (03:00)
Þetta er svona leikur sem endar 0-0 því það munu mjög fáir nenna horfa á þennan leik. Hef heyrt að Zidane eldri mæti ekki að horfa á strákinn sinn eftir vonbrigði í fyrsta leik.
Portúgal 2 - 0 Úsbekistan (17:00)
Siggi Bond vinur minn verður bara að fá Portúgal sigur og helst Ronaldo mark. Hugsið ykkur, skora 6 mót í röð. Það er ótrúlegt. Lítið að segja um Úsbekistan nema að þeir verða frægir fyrir það að Ronaldo skoraði á móti þeim þetta fræga mark.
England 3 - 1 Gana (20:00)
Ég er að elska orkuna í Englendingum. Harry Kane, er hann sá besti í heiminum í dag? Hann er að fara sýna það áfram á þessu móti. Skorar 2. Rashford skorar svo þriðja markið. Vörnin nær ekki að halda hreinu og það kemur eitt mark frá Gana.
Panama 0 - 2 Króatía (23:00)
Það er pressa á okkar vinum í Króatíu. Þarna hjálpar til þessi reynsla sem Króatar eru með á stórmótum. Það er bara ekki í boði fyrir Króata að tapa þessum leik.