Fotbolti.net
23.06.26 - 00:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Seinni hálfleikur hafinn í leik Frakka og Íraka - Engin vatnspása

Seinni hálfleikur hafinn í leik Frakka og Íraka - Engin vatnspása
Canon

Mynd: EPA

Seinni hálfleikurinn í leik Frakklands og Íraks í Philadelphiu er hafinn eftir rúmlega tveggja tíma seinkunn.

Það kom tilkynning í hálfleik þess efnis að seinni hálfleikurinn gæti ekki farið af stað fyrr en eldingavirkni á svæðinu myndi linna. Fyrri hálfleik lauk rétt fyrir klukkan tíu.

Það hefur verið vatnspása í hvorum hálfleiknum á leikjunum til þessa en það verður engin vatnspása í seinni hálfleiknum í nótt.
Mbappe jafnaði markafjölda Ronaldo - Tafir vegna þrumuveðurs
TENGT EFNI

Mbappe jafnaði markafjölda Ronaldo - Tafir vegna þrumuveðurs

Kylian Mbappe skoraði eina mark leiksins til þessa eftir stundafjórðung en hann hefur skorað fimmtán mörk á heimsmeistaramóti.

Hann er þriðji markahæstur í sögu keppninnar ásamt brasilíska framherjanum Ronaldo. Lionel Messi bætti met Miroslav Klose með tveimur mörkum gegn Austurríki í kvöld.
Vallarstarfsmenn að störfum.

Vallarstarfsmenn að störfum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.