
Sterkastur í 11. umferð - Markametið svo sannarlega í hættu

Elías Már er leikmaður umferðarinnar í annað sinn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lætur ekki rigna upp í nefið á sér.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már er leikmaður umferðarinnar í annað sinn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías er einn markahæstur í deildinni með tólf mörk eftir tólf spilaða leiki í deildinni. Hann hefur einnig skorað tvö mörk í þremur bikarleikjum í sumar.
Fyrir leikinn gegn Fram hafði Elías ekki skorað í þremur leikjum í röð og talaði um „smá þurrð" hjá sér í viðtali eftir leikinn. Mörkin tólf hafa komið í tíu byrjunarliðsleikjum og hefur framherjinn skorað 1,24 mörk að meðaltali á hverjum 90 mínútum spiluðum í deildinni.

Sterkasta lið 11. umferðar - Sjö úr stórkostlegri frammistöðu Víkings
Elías, sem sneri heim til Íslands eftir rúman áratug erlendis sem atvinnumaður, er í toppformi, er að spila með langbesta og heitasta liði landsins og ef frá sem horfir mun hann bæta markametið í deildinni.
„Síðan ég kom hefur mér bara liðið mjög vel og það hafa allir bara tekið vel á móti manni. Ég hef aldrei verið í jafn góðu liði eins og hérna, ekki bara leikmennirnir heldur líka fólkið í kring, það eru allir frábærir. Þetta er bara mjög ljúft.''
Fyrir mót var talað um að Elías væri of þungur eftir heimkomuna frá Kína þar sem hann lék seinni hluta síðasta árs og var Elías orðaður við mögulegt lán til uppeldisfélagsins Keflavíkur.
„Maður talar á vellinum, það er það eina sem ég get gert, ég reyni að gera mitt besta fyrir liðið og það hefur gengið til þessa."
„Ég hef fyrst og fremst aldrei unnið neinn titil, það er markmiðið að vinna titil, að slá markametið yrði náttúrulega bara bónus," sagði Elías.
„Ég er gífurlega ánægður með hann og það eru ekki bara mörkin sem hann skorar, það er vinnuframlagið hjá honum og hvernig hann er að vinna fyrir liðið allt saman. Við leggjum mikla áherslu á það og það er rosalega auðvelt, get ég ímyndað mér, ég hef nú ekki skorað svona mörg mörk áður, að fara aðeins að slaka á og láta rigna upp í nefið á sér en hann gerir það ekki sama hversu vel það er búið að ganga," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um Elías eftir sigurinn frábæra gegn Fram.
Elías Már skoraði þrennu í stórkostlegum sigri Víkinga! ???????????????? #bestadeildin pic.twitter.com/N0IxNUzETd
— Besta deildin (@bestadeildin) June 21, 2026
Sterkustu leikmenn:
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)

Lætur ekki rigna upp í nefið á sér.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már: Hef aldrei verið í jafn góðu liði
Innkastið - Dalur martraðanna


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



