HM: Mbappe orðinn næstmarkahæstur í sögunni

Ousmane Dembele og Kylian Mbappe áttu frábæran leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Menn í vinnu í hálfleik

Frakkland 3-0 Írak
1-0 Kylian Mbappe ('14 )
2-0 Kylian Mbappe ('54 )
3-0 Ousmane Dembele ('66 )
1-0 Kylian Mbappe ('14 )
2-0 Kylian Mbappe ('54 )
3-0 Ousmane Dembele ('66 )
Kylian Mbappe er orðinn næstmarkahæstur í sögu heimsmeistaramótsins eftir að hafa skorað tvennu í sigri Frakka á Írak í nótt. Sigurinn tryggði Frökkum sæti í 32-liða úrslitum.
Mbappe kom Frökkum yfir eftir stundafjórðung þegar hann skoraði með góðu skoti fyrir utan teiginn.
Það hefur verið mikil umræða um veðurfarið í Bandaríkjunum og í fyrsta sinn á þessu móti varð mikil töf á leiknum vegna þrumuveðurs. Það kom viðvörðun eftir að fyrri hálfleik lauk og seinni hálfleikurinn gat ekki farið af stað fyrr en tveimur tímum seinna.
Þegar tæplega tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik gerðu Írakar skelfileg mistök í öftustu línu eftir útspark. Ousmane Dembele fékk boltann og gaf hann á Mbappe sem skoraði sitt annað mark og annað mark Frakka.
Hann hefur því skorað 16 mörk á lokamóti heimsmeistaramótsins. Það gerir hann að næstmarkahæsta leikmanni sögunnar ásamt Þjóðverjanum Miroslav Klose. Lionel Messi er markahæstur með 18 mörk eftir tvennu gegn Austurríki fyrr í kvöld.
Hann hefði getað eignað sér annað sætið en hann skaut framhjá úr góðu færi eftir frábæran sprett. Dembele innsiglaði sigur Frakka eftir sendingu frá Michael Olise. Þetta var fyrsta mark Dembele á HM.
Frakkar tryggðu sér þar með sæti í 32-liða úrslitum.