Fotbolti.net
22.06.26 - 22:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mbappe jafnaði markafjölda Ronaldo - Tafir vegna þrumuveðurs

Mbappe jafnaði markafjölda Ronaldo - Tafir vegna þrumuveðurs
Canon

Mynd: EPA

Frakkland er 1-0 yfir gegn Írak í hálfleik í Philadelphia en það eru töf á því að seinni hálfleikur getur hafist vegna þrumuveðurs.

Kylian Mbappe kom Frökkum yfir eftir um stundafjórðung þegar hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn. Hann hefur því skorað 15 mörk á heimsmeistaramóti og jafnaði brasilíska framherjann Ronaldo í 3. sæti. Lionel Messi bætti met Þjóðverjans Miroslav Klose fyrr í kvöld.
Messi orðinn markahæstur í sögu HM
TENGT EFNI

Messi orðinn markahæstur í sögu HM

Það byrjaði að hellirigna og stuðningsmenn fengu skipanir um að koma sér í skjól í hálfleik vegna „eldingavirkni" á svæðinu.

Það verða að líða 15 mínútur án eldinga áður en leikmönnum er leyft að fara aftur út, og síðan eru 15 mínútur gefnar til upphitunar.

Sjáðu markið hér


Match under delay at half time
by
u/shlem90 in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.