Fanney Lísa á leið á EM: „Ég er mjög spennt fyrir því að fara út“

Fanney Lísa átti góðan leik á Samsungvellinum og fram undan er stórt verkefni með U19 landsliðinu á EM

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Lísa átti góðan leik á Samsungvellinum og fram undan er stórt verkefni með U19 landsliðinu á EM

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Lísa Jóhannesdóttir átti góðan leik þegar Stjarnan vann sannfærandi 3-0 sigur á Fram í 9. umferð Bestu deildarinnar á Samsungvellinum. Fram undan hjá henni er svo annað stórt verkefni, lokamót Evrópumóts U19 landsliða.
„Bara mjög vel, ég er mjög glöð. Geggjað lið og geggjuð frammistaða.“ svaraði Fanney Lísa aðspurð um viðbrögð eftir leik.
Fanney var ánægð með frammistöðu Stjörnunnar og hrósaði liðsfélögum sínum eftir leikinn.
„Bara geggjað lið eins og ég sagði og bara frábært að spila með þeim.“
Að hennar mati var munurinn á liðunum nokkuð skýr þegar leið á leikinn.
„Eiginlega bara allt sko, sóknarleikurinn og það bara gekk allt mjög vel hjá okkur. Byrjaði smá erfitt en svo bara kom þetta.“
Stjarnan tapaði 2-1 í framlengdum bikarleik gegn Grindavík/Njarðvík á fimmtudaginn sl. en Fanney Lísa telur það ekki hafa haft áhrif á liðið.
„Nei, við tókum bara pirringinn og bara ákváðum að reyna að vinna þennan leik.“
Þó deildin fari nú í hlé bíður Fanneyjar Lísu ekkert sumarfrí. Hún var valin í lokahóp U19 landsliðs Íslands sem tekur þátt í lokamóti Evrópumótsins.
„Hún er bara mjög góð og ég er mjög spennt fyrir þessu.“
Fanney þekkir hópinn vel og hlakkar mikið til verkefnisins.
„Ég þekki þær mjög vel, þær eru mjög skemmtilegar og geggjaður hópur. Ég er mjög spennt fyrir því að fara út.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.




