Fotbolti.net
22.06.26 - 23:02
Snæbjört Pálsdóttir

„Það eru mörg stig sem við þurfum að sækja í seinni umferðinni“

Auglýsing
Fyrirliðinn Hildur María Jónasdóttir telur að nýting færa og mistök Fram hafi ráðið úrslitum í 3-0 tapi gegn Stjörnunni.

Fyrirliðinn Hildur María Jónasdóttir telur að nýting færa og mistök Fram hafi ráðið úrslitum í 3-0 tapi gegn Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Hildur María Jónasdóttir, fyrirliði Fram, var svekkt eftir 3-0 tap gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í 9. umferð Bestu deildarinnar. Fram byrjaði leikinn af miklum krafti og skapað sér nokkur góð færi á upphafsmínútunum leiksins. 

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 0 Fram

„Bara mjög vonsvikin. Mér fannst við koma inn af krafti og við áttum sénsa. Mér fannst við bara vera með mómentið með okkur en við náðum ekki að klára færin og þær refsuðu okkur þegar við gerðum mistök.“

„Þetta voru bara dýr mistök og við gáfum þeim mörkin sem þær fengu. Við bara kláruðum ekki færin okkar þannig að þetta er bara algjörlega á okkur.“


Fram vann stóran 7-1 sigur á FHL í Mjólkurbikarnum á dögunum og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Hildur segir þann leik hafa gefið liðinu mikilvægt sjálfstraust.

„Það gaf okkur mikið sjálfstraust að komast áfram í bikarnum og skora mörk. Það hefur verið vesen hjá okkur að skora mörk, þannig að það klárlega hjálpaði þeim mikið að skora sjö mörk.“

„Margir fengu að spila og fengu sjálfstraust úr þeim leik. Ég held að það hafi hjálpað okkur klárlega í dag en það gekk ekki upp því miður.“


Aðspurð hvað hafi helst skilið liðin að í leiknum svaraði hún einfaldlega:

„Bara hvað þær kláruðu öll færin sem þær fengu. Bara öll mistökin sem við gerðum, þær nýttu þau og kláruðu færin sín.“

„Ég held að Birna hafi fengið þrjú færi og skorað úr þremur. Ég held að það sé bara munurinn, að klára færin.“


Nú tekur við hlé á deildinni vegna þátttöku U19 landsliðsins á Evrópumótinu. Hildur segir að Fram muni nýta tímann vel.

„Við fáum smá helgarfrí en svo er bara að æfa, við þurfum á því að halda.“

„Við ætlum bara að taka æfingaleik, æfa af krafti og koma inn í seinni umferðina af krafti. Það eru mörg stig sem við þurfum að sækja í seinni umferðinni.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.