Fotbolti.net
22.06.26 - 22:05
Ívar Björgvinsson

Óskar Hrafn: Vona að ég sjái hann ekki á KR svæðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir tuttugu ár

Auglýsing
Óskar Hrafn: Vona að ég sjái hann ekki á KR svæðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir tuttugu ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann 5-3 sigur á ÍA í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar karla á Meistaravöllum. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Óskar Hrafni, þjálfara KR, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA

„Ég er bara ánægður með karakterinn, ánægður með sóknarleikinn að mörgu leyti og ánægður með hvernig við stigum upp eftir erfiðar og orkulitlar fyrstu 20 mínúturnar. Skaginn, kannski ekki alveg keyrði yfir okkur, en svona nálægt því og gerðu okkur lífið leitt. Þeir komu bara miklu sterkari inn í þennan leik en mér fannst við svara því vel og komum tvisvar til baka og eftir jöfnunarmark þeirra náum að komast aftur yfir.''

Mikilvægt var fyrir KR að vinna þennan leik eftir tap í toppslagnum gegn Víking í síðustu umferð.

„Einhverjir hefðu kannski haldið að við yrðum daufir eftir þennan ljómandi fína Víkingsleik sem skilaði engum stigum en mér fannst menn svara því vel í dag. Frammistaðan spilanlega séð, ég hef oft séð aðeins betra flæði í leiknum okkar, þá er samt rosa erfitt að kvarta yfir þessu.''

KR-ingar byrjuðu leikinn mjög illa og ÍA menn óðu í færum fyrsta korterið og komast verðskuldað yfir.

„Ég veit ekki alveg hvað veldur þessari byrjun. Stundum er þetta bara svona, það hefur nú yfirleitt verið öfugt, yfirleitt höfum við byrjað af þvílíkum krafti og keyrt yfir lið. Nú voru Skagamenn í því hlutverki og stundum koma menn bara þannig inn í leikinn. Það var góður andi fyrir leik en svo var orkustigið lágt þegar við byrjuðum leikinn og þeir á fullu.''

Alexander Rafn Pálmason spilaði sinn síðasta leik fyrir KR, í bili að minnsta kosti, en hann heldur nú út til Nordsjælland í atvinnumennsku.

„Ég er bara þakklátur og auðmjúkur fyrir það að hafa fengið að þjálfa hann. hann er frábær fótboltamaður og yndislegur ungur maður. Ég vona að ég sjái hann ekki á KR svæðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir 20 ár. framtíðin hans er gríðarlega björt og okkur hlakkar bara til að fylgjast með honum í Danmörku.''

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.

Alexander Rafn er farinn frá KR.

Alexander Rafn er farinn frá KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.