Oliver Stefáns fer í FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Stefánsson (2002) er á leið í FH samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Eins og fram kom hér á Fótbolti.net á dögunum var Oliver að vinna í því að fá sig lausan frá pólska félaginu GKS Tychy.

Skagamaðurinn gekk í raðir pólska B-deildar félagsins síðasta haust frá ÍA og skrifaði þá undir þriggja ára samning. Hann er uppalinn hjá ÍA en hefur einnig verið á mála hjá Norrköping og Breiðabliki á sínum ferli.
Hann er varnarsinnaður leikmaður sem spilað hefur bæði í vörninni og á miðjunni. Hann á að baki 21 leik fyrir yngri landsliðin og var á sínum tíma fyrirliði U17. Hann kom við sögu í 13 deildarleikjum í vetur og lagði upp eitt mark fyrir GKS sem endaði í neðsta sæti deildarinnar.
Þess má geta að hann og Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eru frændur.