Fotbolti.net
22.06.26 - 22:31
Ívar Björgvinsson

Aron Sig: Segi þetta eftir nánast hvern einasta leik

Auglýsing
Aron Sig: Segi þetta eftir nánast hvern einasta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann 5-3 sigur á ÍA í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar karla á Meistaravöllum. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Aroni Sigurðarsyni, leikmanni KR, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA

„Það var fínt að vinna þennan leik, alltaf fínt að vinna leiki þar sem við vorum ekki upp á okkar besta, en vorum samt betri. Þetta var bara mjög kaflaskipt, þeir byrja þetta mjög sterkt og skora snemma og síðan aftur eftir mistök hjá okkur og við þurfum að fara að klóra í bakkann. Við gerum það vel og sýnum góðan karakter en síðan tökum við gjörsamlega yfir leikinn. Ég segi þetta eftir nánast hvern einasta leik en þetta á ekki að vera svona tæpt.''

KR byrjaði leikinn ekki vel en það var gríðarlega mikilvægt að vinna þennan leik til þess að halda titilbaráttunni á lífi.

„Þeir voru ofan á í baráttunni í byrjun, bara eins og þeir eru. Við vorum að spila á móti góðu liði og ég er bara mjög sáttur við að ná í sigurinn og sýna bara andlegan styrk og karakterinn. Það eru framfarir þar og mikilvægt að vinna þennan leik.''

Aron skoraði tvö mörk og lagði upp eitt en hann kominn með 11 mörk í deildinni.

„Það er mjög gaman að vera í KR í dag og gengur vel hjá mér. Ég þurfti að gera lítið í dag, mér fannst Galdur koma geðveikur inn, enn og aftur. Hann á góða sendingu á mig í öðru markinu og síðan á hann góða sendingu á mig þegar ég gef á Eið og hann skorar. Það eru margir að tikka inn mörkum og stoðsendingum og fullt af fólki á vellinum. Það er bara geðveikt að vera í KR.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.