Fotbolti.net
15.09.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Webb svekktur en ekki eins svekktur og dómararnir

Howard Webb ræddi við Michael Owen um atvikið umtalaða.

Howard Webb ræddi við Michael Owen um atvikið umtalaða.

Canon

Mynd: Skjáskot

Howard Webb, yfirmaður dómaramála, hefur viðurkennt að VAR dómararnir hafi ekki skoðað rangstöðu Enzo Fernandez í sigurmarki Manchester City gegn Manchester United á laugardaginn.

Webb segist „mjög vonsvikinn“ með mistök VAR-dómarans Matt Donohue og aðstoðarmanns hans Blake Antrobus en þeir hafa verið settir til hliðar og starfa ekki á komandi leikjum.
VAR dómararnir í Manchesterslagnum í skammarkrókinn
TENGT EFNI

VAR dómararnir í Manchesterslagnum í skammarkrókinn

Erling Haaland skoraði eina mark leiksins en flögguð var rangstaða. VAR-skoðun leiddi í ljós að Haaland var réttstæður og markið var dæmt í gilt. Í ljós kom að myndbandsdómararnir höfðu gert mistök með því að skoða ekki rangstöðu Fernandez sem hafði áhrif á leikinn.

„Ég er mjög svekktur með þessa niðurstöðu. Við erum það allir en engir meira en dómararnir sjálfir. Þeir eru mjög leiðir yfir því að hafa brugðist í þessari stöðu," segir Webb.

Webb svekktur en ekki eins svekktur og dómararnir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.