Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 16. október 2020 12:52
Magnús Már Einarsson
Félög senda út yfirlýsingu - Skora á KSÍ að klára mótið
Úr leik í 2. deild.
Úr leik í 2. deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Níu félög í Lengjudeildinni, 2. deild og 3. deild karla hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á KSÍ að halda Íslandsmótinu áfram til 1. desember.

Ekkert hefur verið spilað síðan 7. október og óvíssa er um framhald mótsins vegna kórónuveiru faraldursins.

Í yfirlýsingunni kalla félögin eftir því að mótið verði klárað.

Yfirlýsingin
Eftirfarandi félög hvetja KSÍ að halda Íslandsmótum í knattspyrnu áfram til 1. desember n.k. Skoðun okkar er að það á að klára öll mót svo að allir njóti sanngjarnrar lokaniðurstöðu.

Hreyfingin mun bera mikinn skaða af því að hlusta eingöngu á raddir félaga sem halda uppi áróðri í fjölmiðlum um bestu niðurstöðu sinna félaga í öllum deildum Íslandsmótsins.

Í reglugerð KSÍ um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru (Covid-19) segir í gr. 4.4. Öllum leikjum í Íslandsmótum skal vera lokið eigi síður en 1. desember 2020 og verður einstökum leikjum eða mótum meistaraflokka ekki frestað aftur fyrir þann tíma.

Félög sem senda þessa yfirlýsingu eru:
Álftanes
Fram
Haukar
Leiknir F
Magni
Njarðvík
Víðir
Vængir Júpíters
Þróttur V
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner