Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 16. október 2020 21:43
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Hólmbert í stúkunni er Brescia vann Lecce
Florian Aye skoraði fyrir Brescia
Florian Aye skoraði fyrir Brescia
Mynd: Getty Images
Ítalska B-deildarliðið Brescia vann góðan 3-0 sigur á Lecce er liðin mættust í 3. umferð deildarinnar í kvöld. Bæði liðin léku í A-deildinni á síðustu leiktíð.

Emanuele Ndoj gerði tvö mörk fyrir Brescia á meðan Florian Aye gerði þriðja mark liðsins.

Birkir Bjarnason og Hólmbert Aron Friðjónsson voru ekki í hópnum hjá Brescia.

Birkir spilaði þrjá landsleiki á dögunum og var að glíma við smávægileg meiðsli og þá hefur Hólmbert verið að eiga við meiðsli síðustu vikur.

Hólmbert gekk til liðs við Brescia undir lok gluggans en hann var mættur á völlinn í kvöld til að styðja við sína menn.

Brescia er í 6. sæti með 4 stig úr fyrstu þremur leikjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner