Alfreð: Leiðinlegt að drulla yfir það
Auglýsing

Alfreð Finnbogason fagnar marki sínu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alfreð Finnbogason fagnar marki sínu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alfreð Finnbogason var á skotskónum í 4-0 sigri Íslands á Liechtenstein í kvöld, en hann hrósaði Gylfa Þór Sigurðssyni fyrir að ná markametinu og talaði þá um lið Liechtenstein, sem hann segir sérfræðinga í ákveðnum atriðum.
Lestu um leikinn: Ísland 4 - 0 Liechtenstein
Framherjinn hafði ekki úr miklu að moða í leiknum. Hann kom sér tvö eða þrjú færi í leiknum.
Undir lok hálfleiksins skoraði hann mark sitt. Willum Þór Willumsson skallaði boltann inn á Alfreð sem kláraði af yfirvegun, en þetta var átjánda mark hans fyrir landsliðið.
„Skyldusigur og gerðum þetta fagmannlega, en við vildu alveg skora fleiri mörk. Við héldum hreinu þrátt fyrir að fá á okkur víti sem á aldrei að gerast í svona leik. Þetta verður bara vitleysa í seinni hálfleik, þeir stoppa leikinn og kemst ekkert 'tempo' í leikinn og 'tricky' stundum. Við gerðum okkar skylduverk og gerðum þessa tvo leiki sannfærandi, en maður hefur val hvernig maður fer inn í leikina og mér fannst við gera þetta mjög fagmannlega,“ sagði Alfreð.
Hann var ekkert í skýjunum með eigin frammistöðu, en í heildina sáttur.
„Allt í lagi, en get betur í mörgum tilfellum. Maður reynir að halda sér miðsvæðið og vera klár þegar 'crossarnir' koma en það munu alltaf koma stórir kaflar í leiknum þar sem maður er ekkert 'involveraður' en það er líka uppleggið að mörgu leyti. Oft var maður kaldur þegar maður kom sér í mikilvægar stöður, en heilt yfir á maður að skora og vera í kringum uppspilið. Ég fékk engin fimm færi en sáttur að skora og getað hjálpað liðinu.“
Liechtenstein spilaði engan samba-bolta í leiknum og var liðið meira í því að tefja, brjóta og stöðva leikinn þannig. Alfreð sagði það ekki beint, en leikstíllinn pirraði augljóslega þennan reynslumikla framherja.
„Þetta eru nokkur lönd: Andorra, Liechtenstein og bara lönd sem eru sérfræðingar í þessu. Ég veit ekki hvað maður á að segja, þau eru þar sem þau eru á heimslistanum og leiðinlegt að vera að drulla yfir það. Þau eru sérfræðingar í þessu, en manni langar bara að spila fótbolta, búa til færi og skora fleiri mörk. Þau taka alltaf dampinn úr leikjunum og það þarf mikla fagmennsku og aga til að halda dampi í svona leik.“
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði tvö og er nú markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi, en Alfreð er ótrúlega ánægður fyrir hans hönd og glaður að geta fagnað þessu með honum.
„Geggjað. Ef einhver á þetta skilið þá er það hann. Búinn að ganga í gegnum erfiða tíma og koma svo til baka í svona formi og 'clinical' fyrir framan markið. Geggjað að vera saman með honum í þessari reisu og hann á þetta svo sannarlega skilið,“ sagði Alfreð enn fremur.