16.10.26 - 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Mikið af rauðum spjöldum er meistararnir sigruðu Kópavog

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 1 - 2 Víkingur R.
1-0 Jónatan Guðni Arnarsson ('20)
1-1 Daníel Hafsteinsson ('62)
1-2 Sveinn Margeir Hauksson ('68)
Rautt spjald: Anton Logi Lúðvíksson, Breiðablik ('21)
Rautt spjald: Ágúst Helgi Orrason, Breiðablik ('89)
Rautt spjald: Daníel Hafsteinsson, Víkingur R. ('89)

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Víkingur R.
Síðasta leik kvöldsins í íslenska boltanum er lokið. Íslandsmeistarar Víkings R. höfðu þar betur gegn Breiðabliki eftir skemmtilegan slag.
Víkingar byrjuðu að sækja en Blikar náðu forystunni eftir 20 mínútna leik þegar Jónatan Guðni Arnarsson skoraði frábært mark eftir góðan undirbúning frá Davíð Ingvarssyni.
Skömmu síðar fékk Anton Logi Lúðvíksson að líta beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti varnarmaður í kjölfar arfaslakrar sendingar frá nafna sínum úr markinu. Anton Ari Einarsson gaf alltof lausan bolta á Anton og komst Valdimar Þór Ingimundarson á milli og fiskaði aukaspyrnu og rautt spjald.
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Blika fékk svo að líta rauða spjaldið eftir samskipti við Ívar Orra Kristjánsson dómara. Víkingar sóttu stíft en Íslandsmeisturunum tókst ekki að jafna metin fyrir leikhlé, svo staðan var 1-0.
Tíu Blikar sýndu hetjulega baráttu en þeim tókst ekki að halda forystunni lengi. Daníel Hafsteinsson skaut í slána áður en hann jafnaði eftir einfalt þríhyrningsspil við Valdimar Þór og sex mínútum síðar náði Sveinn Margeir Hauksson forystunni með stórkostlegu aukaspyrnumarki af um 30 metra færi. Anton Ari átti ekki möguleika.
Víkingar reyndu að bæta þriðja markinu við og fengu Blikar hálffæri til að jafna, en ekki rataði boltinn í netið. Á lokamínútunum fengu Daníel Hafsteins og Ágúst Helgi Orrason svo að líta sitthvort rauða spjaldið eftir mikil átök á vellinum. Daníel byrjaði á að taka Gabríel Snæ Hallsson hálstaki og varð allt vitlaust.
Lokatölur 1-2 fyrir Víking R. í leik sem innihélt þrjú mörk og þrjú rauð spjöld. Fjögur rauð ef Ólafur Ingi þjálfari er talinn með.
Þess má geta að þetta er annar leikurinn í röð sem Daníel Hafsteinsson spilar og fær rautt spjald.