Fotbolti.net
16.10.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mattías Kjeld: Hann er geggjaður þjálfari og ég á honum margt að þakka

Rúnar Páll var ráðinn til Stjörnunnar í vikunni.

Rúnar Páll var ráðinn til Stjörnunnar í vikunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mattías Kjeld skoraði tíu mörk fyrir Gróttu í Lengjudeildinni á tímabilinu, hann er fæddur 2009 og er að því sem Fótbolti.net kemst næst yngsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins til að skora tíu mörk eða fleiri í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins. Hann var valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar hér á Fótbolta.net.

Hann var svo í haust keyptur til grannanna í KR. Hann ræddi um tímabilið með Gróttu og þjálfarann Rúnar Pál Sigmundsson í viðtali í gær.
Mattías Kjeld: Hann sagði mig vera með rangt hugarfar og að leikmenn vildu ekki hafa mig
TENGT EFNI

Mattías Kjeld: Hann sagði mig vera með rangt hugarfar og að leikmenn vildu ekki hafa mig

„Ég hef alltaf vitað hvað ég get, var kannski ekki að búast við að skora svona mörg mörk miðað við stöðuna sem var á Gróttu þegar ég kom. Liðið var nýkomið úr 2. deild og ég bjóst ekki við því að liðið myndi spila svona góðan fótbolta. Ég hef alltaf vitað hvað ég get í fótbolta og ég er gríðarlega þakklátur Gróttu fyrir traustið, það skiptir mig miklu máli. Ég þarf að vita að þjálfarinn veit hvað ég get og Rúnar vissi það frá fyrstu æfingu. Ég spilaði alla leiki í sumar og ef ég fæ að spila alla leiki þá yfirleitt næ ég að bakka það upp," sagði Mattías við Fótbolta.net.

Rúnar Páll var ráðinn þjálfari Stjörnunnar fyrr í þessari viku og tekur við Garðabæjarliðinu eftir tímabilið.

„Það verður geðveikt að mæta honum á næsta tímabili, gott að fá hann í þetta starf, held að hann sé hárrétti maðurinn í þetta starf. Hann er geggjaður þjálfari og ég á honum margt að þakka," sagði Mattías.

Viðtalið, sem er ansi áhugavert, má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Mattías Kjeld blómstraði undir stjórn Rúnars.

Mattías Kjeld blómstraði undir stjórn Rúnars.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mattías Kjeld: Hann sagði mig vera með rangt hugarfar og að leikmenn vildu ekki hafa mig

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.