Fotbolti.net
16.10.26 - 23:38
Sigurjón Árni Torfason

Viktor Karl: Ég er ekki að fara neitt

Auglýsing
Viktor Karl var eðlilega ósáttur eftir leik.

Viktor Karl var eðlilega ósáttur eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tók á móti Víkingum á Eikarvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla. Víkingar unnu leikinn 2-1 í mjög skemmtilegum og fjörugum leik. Fótbolti.net voru mættir og heyrðu í Viktori Karl eftir leik
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Víkingur R.
„Byrjuðum leikinn náttúrulega mjög vel og fannst við bara vera með þá þarna í 20 mínútur, skoruðum gott mark og svo kemur stór ákvörðun. Ég er búinn að sjá þetta aftur og bara ég skil ekki alveg hvernig hann fær rautt spjald út. En það breytir leiknum svolítið og við förum í aðeins varnarsinnaðra skipulag sem að gekk bara mjög vel, fáum síðan bara á okkur mark. Þeir náttúrulega voru að reyna að brjóta okkur niður hérna allan leikinn og á endanum náðu þeir inn frekar auðveldu marki. Annars bara, góð frammistaða og svona heilt yfir sáttir með leikinn, en bara óheppni að í rauninni gefa þessi mörk."

Viktor Karl hefur verið í umræðunni og er orðaður við Val þar sem hans gamli þjálfari Halldór Árnason tekur við eftir tímabil.

„Ég hef ekki heyrt neitt um það. Ég er með þrjú ár í viðbót hérna í Breiðablik þannig að ég er bara sáttur og er ekki að fara neitt."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.