Lionel Messi sá um að skora eina mark leiksins þegar Argentína mætti Brasilíu í æfingaleik í gærkvöldi. Messi fylgdi á eftir vítaspyrnu sinni og skoraði í fyrri hálfleik.
Sjá einnig: Tite: Messi sagði mér að þegja
Sjá einnig: Myndband: Messi sussaði á þjálfara Brasilíu
Sjá einnig: Tite: Messi sagði mér að þegja
Sjá einnig: Myndband: Messi sussaði á þjálfara Brasilíu
Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu, vildi fá gula spjaldið á Messi í leiknum og í kjölfarið sussaði Messi á Tite. Messi tjáði sig ekki um þau samskipti heldur almennt um leikinn í viðtali eftir leik.
„Það hefur aldrei verið meiri rígur en nákvæmlega núna milli þessara tveggja landa."
„Við settum leikinn vel upp og við lítum bjartir á framhaldið. Alltaf betra að vinna leikina."
„Það styttist í undankeppnina (fyrir HM 2022) og hópurinn er samheldinn. Við vorum frábærir varnarlega í kvöld," sagði Messi eftir leikinn.
Athugasemdir