banner
   mán 17. janúar 2022 23:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lúkas Logi: Geggjað að fá að spila með rugl góðum Pinamonti og Cutrone
Mæta næst Dortmund í Evrópu - Það er mjög spennandi verkefni
Mæta næst Dortmund í Evrópu - Það er mjög spennandi verkefni
Mynd: Empoli
Það er mun meiri ákefð á æfingum
Það er mun meiri ákefð á æfingum
Mynd: Empoli
Bæði skemmtilegt og hvetjandi að sjá menn frá mínu félagi spila með A-landsliðinu
Bæði skemmtilegt og hvetjandi að sjá menn frá mínu félagi spila með A-landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mér finnst skemmtilegast að spila í holunni
Mér finnst skemmtilegast að spila í holunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég leit mjög mikið upp til Viðars Ara þegar ég var að koma upp yngri flokkana
Ég leit mjög mikið upp til Viðars Ara þegar ég var að koma upp yngri flokkana
Mynd: KSÍ
Ég fattaði svo seinna að hann var ekkert virkilega spes.
Ég fattaði svo seinna að hann var ekkert virkilega spes.
Mynd: Getty Images
Pinamonti er gæðaspilari
Pinamonti er gæðaspilari
Mynd: Getty Images
Patrick Cutrone
Patrick Cutrone
Mynd: Getty Images
Empoli er um miðja deild í Serie A
Empoli er um miðja deild í Serie A
Mynd: EPA
Aurelio Andreazzoli er stjóri Empoli
Aurelio Andreazzoli er stjóri Empoli
Mynd: EPA
„Ég vissi fyrst af áhuga Empoli einum og hálfum mánuði áður en ég fór út. Ég varð svo ekkert var um neitt þar til á lokadegi gluggans þegar félagið sendi tilboð á Fjölni og til umboðsmannsins og þetta kláraðist allt á einhverjum sex klukkustundum."

Lúkas Logi Heimisson er á láni hjá Empoli út ítalska tímabilið. Lúkas er átján ára Fjölnismaður sem lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki sumarið 2020 þegar Fjölnir var í efstu deild. Í sumar hafði hann skorað fimm mörk í sautján leikjum þegar tilboðið frá Empoli kom fyrir lok gluggans í júlí.

Fótbolti.net heyrði í Lúkasi á dögunum og spurði hann út í tímann til þessa á Ítalíu.

Ítalskir meistarar og í Serie A
„Ég var strax mjög spenntur þegar ég heyrði af áhuganum, kynnti mér aðeins félagið. Ég tók eftir því að U19(Primavera) liðið vann efstu deild í fyrra og aðalliðið fór upp í Serie A með því að vinna Serie B. Mér fannst áhugavert að sjá hversu öflugt félagið er. Mig langaði virkilega að fara til félagsins og sagði því já við tilboðinu."

Skiptir það þig máli að þetta sé lánssamningur?

„Nei, það skiptir mig mjög litlu máli. Ég legg mig 100% fram sama hvort það er lán eða eitthvað annað. Ég geri mitt besta og veit að félagið tekur ákvörðun í lok samningsins hvort það ætlar að halda mér eða ekki. Ég hugsa bara um að leggja mig fram og vona það besta. Það sem ég hef heyrt er að þjálfara aðalliðsins líst vel á mig, hefur sagt góða hluti um mig og einnig þjáfararnir í U19."

„Það er mun meiri ákefð á æfingum hér miðað við á Íslandi og maður fær mun minni tíma hér því hver einasti leikmaður stefnir virkilega hátt."


Ætla að stíga upp á nýju ári
Lúkas er yfirleitt í hóp hjá U19 liði félagsins sem er virkilega vel mannað að sögn Lúkasar. „Við eigum að gera betur en við höfum gert. Leikmenn tóku fund eftir síðasta leikinn á síðasta ári og menn voru sammála um að liðið gæti betur. Menn ætla að stíga upp núna eftir áramót."

Empoli er fyrir neðan miðja deild og gengið í síðustu leikjum fyrir áramót var ekki gott.

Það er búið að fresta nokkrum leikjum hjá liðinu. „Covid er að setja mikinn svip á þetta. Næsti leikur okkar er settur á 1. febrúar. Þetta er almennt ástandið á Ítalíu, það greindust nokkrir hjá okkur í byrjun árs en þeir eru núna komnir til baka. Það eru einhvern meginn öll lið að lenda í því að menn séu að greinast."

Mæta Dortmund í Evrópukeppni Unglingaliða
Empoli er í Evrópukeppni unglingaliða og á fyrir höndum einvígi við Dortmund um sæti í næstu umferð.

„Næsti leikur í keppninni er gegn Dortmund 8. febrúar á heimavelli. Það er mjög spennandi verkefni," sagði Lúkas og sagðist aðspurður ekki búast við því að ungstirnið Youssoufa Moukoko myndi spila leikinn með Dortmund. Sigurvegarinn í leiknum fer í 16-liða úrslit keppninnar.

Örugglega sá versti heimilisverkunum
Hvernig ertu að fíla lífið í Empoli?

„Ég er að fíla það virkilega vel, allir strákarnir í liðinu eru mjög duglegir að hjálpa og kenna manni. Þeir eru allir mjög vingjarnlegir, hjálpa mér að skilja það sem þjálfarinn segir og svoleiðis. Mér hefur litist mjög vel á þetta hingað til."

Ertu einn úti eða fór fjölskyldan með þér?

„Ég er einn eins og er en foreldrar mínir og kærastan koma út inn á milli til að heimsækja. Ég bý í húsi með fjórum öðrum strákum í liðinu. Þetta er fínasta aðstaða, erum með allt til alls. Það eru allir öflugir í heimilisverkunum og ef eitthvað er þá er ég örugglega verstur."

Hvernig voru jólin?

„Ég var heima 22. des - 27. des, þá átti ég að mæta aftur út og var einn um áramótin."

Áður en þú tókst þessa ákvörðun að fara til Empoli ræddiru um það við einhvern?

„Ég ræddi við pabba og svo tókum við saman samtalið við umboðsmanninn."

Skemmtilegt að fá sénsinn með Pinamonti og Cutrone
Í nóvember spilaði Lúkas æfingaleik með aðalliði Empoli. Hann spilaði seinni hálfleikinn gegn Aglianese.

„Ég var búinn að æfa með aðalliðinu fyrst þegar ég kom út, ég nýtti þá sénsa og þjálfaranum leist vel á mig. Svo kom æfingaleikur og ég var fenginn í hópinn fyrir þann leik. Það var geggjað, að fá að spila með [Andrea] Pinamonti og [Patrick] Cutrone - þeir eru rugl góðir! Þegar ég fer í skotkeppni á æfingum og svoleiðis - það er galið hvað Pinamonti er góður að klára. Það var virkilega góð upplifun og skemmtilegt að fá þennan séns. Mér fannst ég gera vel, átti þátt í einu marki og er sáttur með það. Ég fékk að heyra að þjálfarinn var mjög sáttur með mig og mína frammistöðu."

Pinamonti er á láni frá AC Milan og Cutrone er á láni frá Wolves.

Fattaði seinna að Emre Can væri ekkert virkilega spes
Hvernig myndir lýsa sjálfum þér sem leikmanni?

„Ég er réttfættur, góður að afgreiða færi, með góða yfirsýn þegar kemur að sendingum og er með góða fyrstu snertingu og góða tæknilega getu. Mér finnst skemmtilegast að spila í holunni en ég hef mikið verið að spila sem fremsti maður."

Aðspurður sagði Lúkas að Lionel Messi væri sinn uppáhaldsleikmaður. „Þegar ég var yngri þá fannst mér líka Emre Can virkilega góður, ég fattaði svo seinna að hann var ekkert virkilega spes. Svo dýrkaði ég að fylgjast með Arjen Robben."

Í hverju finnst þér þú hafa bætt þig hvað mest á þessum mánuðum hjá Empoli til þessa?

„Í flest öllu, mér finnst ég orðinn betri í því að klára færi, að halda og skýla bolta, að vita hvenær ég get tekið fleiri snertingar með boltann."

Erfitt að fara frá Fjölni en þetta er draumurinn
Var erfitt að fara frá Fjölni?

„Þetta var draumurinn, að fara út. Auðvitað var samt erfitt að fara frá Fjölni, ég var búinn að æfa og spila með Fjölni síðan ég var að ég held fjögurra ára. Þetta var bæði erfitt og leiðinlegt en virkilega spennandi og mig langaði þetta síðan ég var krakki. Ég hoppaði því á þetta tækifæri."

Lúkas er í fjarnámi frá Íslandi, bæði frá MÍ og MÁ.

„Ég er búinn að læra allt sem ég þarf að tala um á vellinum en þegar þjálfarinn talar yfir allan hópinn þá skil ég eitt og eitt orð, er ekki alveg kominn í það að skilja þegar menn tala á fullu. Þriðji þjálfari liðsins kann virkilega góða ensku og hann aðstoðar okkur að skilja það sem þjálfarinn vill að við gerum."

Mikil samkeppni í U19 landsliðinu
Þú hefur verið í U19 landsliðinu, hvernig hefur það gengið?

„Það hefur gengið fínt en ég væri alveg til í stærra hlutverk. Samkeppnin er erfið og mjög mikil. Ég er að spila svipaða stöðu og Kristian Nökkvi Hlynsson. Síðast spilaði ég reyndar á vinstri kantinum og kunni vel við mig þar. Mér finnst það mjög þægileg staða, spilaði hana hjá meistaraflokki Fjölnis, skemmtilegt að spila þá stöðu."

Stolt að sjá verðmiðann
Eru Fjölnismenn sem halda sambandi við þig og þú við þá?

„Já, það eru nokkrir þjálfarar og aðrir sem eru að fylgjast með, spyrjast hvernig mér líður og hvernig hefur gengið."

Veist þú hversu mikið Empoli þarf að borga Fjölni ef liðið ætlar sér að nýta sér kaupréttinn í lánssamningum?

„Ég held ég muni svona um það bil hversu mikið það var. Það er alveg smá stolt og pínu magnað að Fjölnir hafi náð að setja þennan verðmiða í samninginn."

Þegar þú fórst út, voru önnur félög að skoða þig?

„Ekkert sem ég veit af, ég var ekkert búinn að fara út á reynslu eða neitt slíkt. Umboðsmaðurinn sagði allavega ekkert um önnur félög."

Hvetjandi að sjá Fjölnismenn í A-landsliðinu
Í landsliðsverkefninu í síðustu viku komu þrír uppaldir Fjölnismenn við sögu. Þeir Viðar Ari Jónsson, Kristall Máni Ingason og Valgeir Lunddal Friðriksson. Hvað hugsaðiru þegar þú sást það?

„Það er bæði skemmtilegt og hvetjandi að sjá menn frá mínu félagi spila með A-landsliðinu. Mér finnst það bara geggjað. Ég leit mjög mikið upp til Viðars Ara þegar ég var að koma upp yngri flokkana. Mér fannst hann stórkostlegur bakvörður. Ég man eftir því að hann var virkilega góður í því að fara framhjá leikmönnum og man sérstaklega eftir marki þar sem hann fór upp allan völlinn með boltann og smellti honum í fjærhornið," sagði Lúkas Logi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner