Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2023 18:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ákærður fyrir að ráðast á Ramsdale
Mynd: Getty Images

35 ára gamall stuðningsmaður Tottenham hefur verið ákærður fyrir að sparka í Aaron Ramsdale markmann Arsenal eftir viðureign liðanna um helgina.


Stuðningsmenn Tottenham höfðu verið að ögra Ramsdale og hann svaraði í sömu mynt eftir að flautað hafði verið til leiksloka þegar í ljós kom að Arsenal hafði unnið leikinn.

Richarlison leikmaður Tottenham var ekki ánægður með þessi viðbrögð Ramsdale og lét hann heyra það, á meðan fór Ramsdale og náði í vatnsbrúsa fyrir aftan markið og í leiðinni fékk hann spark frá aðdáanda Tottenham í bakið.

Þessi stuðningsmaður fer fyrir rétti þann 17. febrúar.

Þá er hann einnig ákærður fyrir að fara inn á og kasta flugeld inn á völlinn.


Enski boltinn - London er rauð og það er Manchester líka
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner