Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. febrúar 2019 17:40
Arnar Helgi Magnússon
Leonard Sigurðsson í Fylki (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir hefur samið við kantmanninn Leonard Sigurðsson en hann kemur frá Keflavík.

Leonard er fæddur árið 1996 og hefur spilað með Keflavík síðan árið 2014 en hann kom þá frá Njarðvík.

Hann hefur leikið stórt hlutverk í lið Keflavíkur undanfarin ár en hann lék 17 leiki með liðinu í Pepsi deildinni á síðasta tímabili.

Samingur Leonards við Keflavík rann út eftir síðasta tímabil og ákvað hann að róa á önnur mið.

Leonard er á varamannabekk Fylkis sem að er nú að spila við Þrótt R. í Lengjubikarnum. Staðan 0-1, Þrótti í vil, þegar þetta er skrifað.


Athugasemdir
banner
banner
banner