Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 17. febrúar 2020 21:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Brot dæmt á Azpilicueta þegar Zouma jafnaði
Mynd: Getty Images
Staðan í leik Chelsea og Manchester United er orðinn 0-2. Harry Maguire skoraði fyrir stuttu skallamark eftir hornspyrnu Bruno Fernandes.

Fyrsta mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks þegar Anthony Martial skallaði góða fyrirgjöf Aaron Wan-Bissaka í netið.

Í millitíðinni, snemma í seinni hálfleik, skoraði Kurt Zouma mark eftir hornspyrnu. VAR skoðaði atvikið og dæmdi brot á Cesar Azpilicueta fyrir bakhrindingu.

Fred ýtir í Azpilicueta áður en hann lendir á Brandon Williams og dæmt er á Azpilicueta.

Þulirnir á NBC segja að það þurfi VAR dómara á VAR dómarana, markið má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner