Aaron Wan-Bissaka lagði upp mark Anthony Martial undir lok fyrri hálfleiks.
Hægri bakvörðurinn sýndi mikil gæði á hægri vængnum þegar hann bjó sér til pláss og fann svo Martial í teignum með glæislegri fyrirgjöf.
Hægri bakvörðurinn sýndi mikil gæði á hægri vængnum þegar hann bjó sér til pláss og fann svo Martial í teignum með glæislegri fyrirgjöf.
Enginn varð meira hissa á þessum tilburðum Wan-Bissaka heldur en Teitur Örlygsson, United stuðningsmaður og fyrrum körfuknattleiksmaður.
„Hahahaha. Hvað var eg að horfa a !!! Wan Bisaka!" Skrifaði Teitur á Twitter og bætti svo við: „Hefði frekar búist við að sjá Sólveigu í Eflingu í sleik við Benidikt Hjá SA. Það helvítis sjokk. #bissaka".
Markið sem Martial skoraði má sjá hér.
Hefði frekar búist við að sjá Sólveigu í Eflingu í sleik við Benindikt Hjá SA. Það helvítis sjokk. #bissaka @fotbolti
— Teitur Örlygsson (@teitur11) February 17, 2020
Athugasemdir