Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 17. febrúar 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Grindavík fær kanadíska landsliðskonu (Staðfest)
Mynd: Alberto Larrea
Kanadíski framherjinn Christabel Oduro hefur samið við Grindavík um að leika með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar.

Christabel er 28 ára gömul og á að baki 5 landsleiki með Kanada.

Auk þess að hafa leikið í heimalandi sínu Kanada þá hefur Christabel einnig leikið í sterkum deildum í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Ísrael og Svíþjóð. Nú síðast lék hún með félaginu Birkirkara á Möltu.

„Christabel er reynslumikill framherji, snögg og kröftug. Knattspyrnudeild Grindavíkur býður hana velkomna til félagsins og væntum við mikils af henni," segir á Twitter síðu Grindavíkur.

Grindavík komst upp úr 2. deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner