Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. febrúar 2021 18:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Emil og félagar með fimm stiga forystu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Padova 2 - 0 Arezzo
1-0 M. Firenze ('13)
2-0 C. Chirico ('88)

Hinn 36 ára gamli Emil Hallfreðsson spilaði fyrstu 86 mínúturnar er Padova lagði botnlið Arezzo að velli í ítölsku C-deildinni.

Padova tók forystuna snemma leiks og leiddi í leikhlé. Leikurinn var þó opinn allt þar til undir lokin þegar Chirico tvöfaldaði forystu heimamanna.

Emil og félagar eru á fleygiferð í ítalska boltanum og sitja á toppi deildarinnar með fimm stiga forystu á Sudtirol. Þetta var fimmti sigur Padova í röð.
Athugasemdir
banner
banner