KF hefur fengið nýjan markvörð til liðs við sig fyrir átökin í 2. deild karla í sumar.
Markvörðurinn Javon Jerrod Sample er gengin í raðir KF og kemur hann til félagsins frá Dalvík/Reyni.
Sample er frá Trínidad og Tóbago en hann kom til Einherja á Vopnafirði árið 2019. Hann spilaði með Einherja í 3. deild 2019 og fyrri hluta sumars í fyrra. Svo fór hann til Dalvíkur/Reynis í ágúst og spilaði þar einn leik í 2. deild.
Núna er hann búinn að semja við KF sem kom mjög á óvart í 2. deild í fyrra og hafnaði í sjötta sæti.
Þá skrifuðu tveir ungir og efnilegir leikmenn við félagið; þeir Aron Elí Kristjánsson og Þorsteinn Már Þorvaldsson. Báðir eru þeir fæddir 2001.
Athugasemdir