Knattspyrnudeild Víkings gekk í gær frá samningi við Christabel Oduro og mun hún því spila með liðinu í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Oduro, sem er fædd árið 1992, skoraði 14 mörk fyrir Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar og var næst markahæsti leikmaður deildarinnar.
Hún er nú gengin til liðs við Víking Reykjavík og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Víking sem hafnaði í 4. sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Oduro á þá 5 landsleiki að baki fyrir kanadíska landsliðið.
Athugasemdir