Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. mars 2021 17:30
Magnús Már Einarsson
Andri Jónasson í ÍH (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍH hefur fengið kantmanninn Andra Jónasson í sínar raðir frá Þrótti í Vogum.

Andri skoraði sex mörk í átján leikjum í 2. deildinni með Þrótti í fyrra.

Andri hefur áður leikið með Fjarðabyggð, ÍR og HK á ferli sínum.

ÍH komst upp úr 4. deildinni síðastliðið haust og er nýliði í 3. deildinni í sumar.

Liðið hefur leik í 3. deildinni þann 8. maí þegar það heimsækir Augnablik í Kópavog.
Athugasemdir
banner