Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. mars 2021 11:41
Magnús Már Einarsson
ÍBV fær bandarískan sóknarmann (Staðfest)
Mynd: ÍBV
ÍBV hefur samið við Delaney Baie Pridham, 23 ára sóknarmann sem kemur frá Bandaríkjunum fyrir keppni í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.

Ásamt því að vera sóknarmaður getur Delaney leikið á miðjunni.

DB, eins og hún er kölluð, hefur æft með ÍBV undanfarnar vikur og spilaði æfingaleik gegn Gróttu þar sem hún lagði upp mark.

DB spilaði fyrir DeAnza Force Youth liðið í ECNL deild Bandaríkjanna sem er sú sterkasta í yngri flokkum þar í landi. Hún spilaði seinna með háskólaliði Santa Clara, liðinu gekk ágætlega og gerðu vel í NCAA deildinni.

Hún kemur beint til ÍBV frá Santa Clara háskólanum, sem er mjög sterkur fótboltaskóli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner