Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 17. mars 2023 22:52
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Sanngjarn sigur Athletic á Valladolid
Gorka Guruzeta skoraði annað mark Athletic
Gorka Guruzeta skoraði annað mark Athletic
Mynd: EPA
Valladolid 1 - 3 Athletic
0-1 Inigo Martinez ('30 )
0-2 Gorka Guruzeta ('57 )
1-2 Cyle Larin ('74 )
1-3 Mikel Vesga ('78 , víti)

Athletic Bilbao gerði sér góða ferð til Valladolid í kvöld og vann 3-1 sigur í La Liga á Spáni.

Inigo Martinez skoraði gott aukaspyrnumark á 30. mínútu fyrir gestina áður en Gorka Guruzeta bætti við öðru á 57. mínútu.

Cyle Larin þurfti ekki mikið að hafa fyrir marki Valladolid en hann fékk boltann beint fyrir framan markið eftir frákast og skoraði örugglega.

Mikel Vesga tryggði sigur Athletic þegar tólf mínútur voru eftir með marki úr vítaspyrnu og lokatölur 3-1 fyrir gestina. Sanngjarn sigur i heildina þar sem Athletic var með alla stjórn á leiknum og mun hættulegri fram á við.

Athletic er í 7. sæti með 36 stig og áfram í baráttu um Evrópusæti á meðan Valladolid er í 14. sæti með 28 stig.
Athugasemdir
banner
banner