Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. maí 2021 16:00
Elvar Geir Magnússon
De Bruyne hefur æft síðustu tvo daga og líður vel
Mynd: Getty Images
Belginn Kevin de Bruyne hefur misst af síðustu tveimur úrvalsdeildarleikjum Manchester City vegna meiðsla, gegn Chelsea og Newcastle.

Nú þegar innan við tvær vikur eru í að City mæti Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar berast góðar fréttir af endurkomu hans.

„Kevin hefur æft síðustu tvo daga og honum líður vel," segir Pep Guardiola, stjóri City.

„Allir vita hversu mikilvægur Kevin er fyrir okkur en við sjáum hvernig næstu dagar þróast hjá honum."
Athugasemdir
banner
banner