U16 landslið kvenna tapaði lokaleik sínum á UEFA Development Tournament í dag.
Stelpurnar mættu Austurríki og leiddu í hálfleik eftir mark frá Sigdísi Evu Bárðardóttur.
Austurríki sneri stöðunni sér í vil í síðari hálfleik áður en Bergdís Sveinsdóttir jafnaði með stórglæsilegu langskoti sem fór í slánna og inn.
Staðan var jöfn allt þar til á 89. mínútu þegar Austurríki setti sigurmarkið og niðurstaðan 3-2 tap.
Ísland tapaði naumlega gegn gestgjöfunum í Portúgal í fyrstu umferð og beið svo lægri hlutar gegn sterku liði Spánar sem endaði í efsta sæti með fullt hús stiga.
Byrjunarlið U16 kvenna sem mætir Austurríki í dag í síðasta leik sínum á UEFA Development Tournament.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 17, 2022
Leikurinn hefst kl. 15:00 og er í beinni útsendingu á vef KSÍ.https://t.co/GDglFV5Vit
Our U16 women side starting lineup against Austria today.#dottir pic.twitter.com/unCcywWZKu