Fotbolti.net
17.05.26 - 18:24
Brynjar Ingi Erluson

Tómas skoraði tvö er AGF fagnaði titlinum - Valgeir féll með Düsseldorf

Tómas Óli skoraði tvö mörk í titilfögnuði AGF-manna

Tómas Óli skoraði tvö mörk í titilfögnuði AGF-manna

Canon

Mynd: AGF

Íslendingaliðin voru í sviðsljósinu í þýsku B-deildinni í dag, en Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Hannover misstu af umspilssæti í efstu deild á meðan Brynjar Ingi Bjarnason felldi Valgeir Lunddal Friðriksson niður í C-deildina.
Stefán Teitur var í byrjunarliði Hannover sem átti möguleika á að komast í umspil.

Til þess þurfti liðið að vinna Nurnberg í lokaumferðinni. Staðan var 3-2 fyrir Hannover þegar lítið var eftir af leiknum en fengu högg í magann er varnarmaðurinn Luka Lochosvili skoraði fyrir Nurnberg og bjargaði stigi fyrir liðið sitt.

Hannover hafnaði þar með í 4. sæti með 60 stig, tveimur stigum frá umspilssæti. Svekkjandi hjá Stefáni og félögum sem verða áfram í B-deildinni á næstu leiktíð.

Brynjar Ingi kom inn af bekknum hjá Greuther Furth sem vann Düsseldorf, 3-0. Valgeir Lunddal var í byrjunarliði Düsseldorf sem var þremur mörkum undir í hálfleik.

Sigur Greuther Furth tryggði liðinu umspil um áframhaldandi veru í deildinni á meðan Düsseldorf er fallið niður í C-deildina.

Logi Hrafn Róbertsson skoraði annað deildarmark sitt með Värnamo og bjargaði stigi í 2-2 jafntefli gegn Norrby í sænsku B-deildinni. Värnamo er í 11. sæti með 10 stig. Srdjan Tufegdzic er þjálfari liðsins.

Hinn 18 ára gamli Tómas Óli Kristjánsson kom inn af bekknum hjá AGF og skoraði tvö mörk á lokamínútunum í 6-2 stórsigri liðsins á Viborg.

AGF hafði tryggt sér danska meistaratitilinn fyrir þennan leik og var titlinum fagnað með stæl.

Daníel Leó Grétarsson var í vörn SönderjyskE sem tapaði fyrir Nordsjælland, 4-1. Daníel Ingi Jóhannesson spilaði síðustu mínúturnar hjá Nordsjælland. Sönderjyske hafnaði í neðsta sæti meistarariðilsins, en Nordsjælland í 3. sæti og mun því fara í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Það er ljóst að FCK, sem hafnaði í efsta sæti Sambandsdeildarriðilsins, mun mæta Bröndby í úrslitaleik um Sambandsdeildarsæti.
Valgeir Lunddal er á leið í C-deildina

Valgeir Lunddal er á leið í C-deildina

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.