Mel Morris, eigandi Derby County, segir að Chelsea sé ekki búið að hafa samband til að spyrjast fyrir um Frank Lampard.
Enskir fjölmiðlar eru sammála um að Lampard muni taka við Chelsea á næstu dögum eftir að hafa átt gott fyrsta tímabil við stjórnvölinn hjá Derby.
„Við höfum gert öllum það ljóst, sérstaklega Frank sjálfum, að við viljum halda honum hjá félaginu til langs tíma," sagði Morris.
„Ef Chelsea vill ráða Frank þá er það undir þeim komið að gera okkur tilboð. Þangað til munum við reikna með að hlutirnir haldist óbreyttir.
„Allir hjá félaginu vilja halda Frank."
Athugasemdir