Fotbolti.net
17.06.21 - 10:34
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Buffon kominn heim til Parma (Staðfest)

Buffon kominn heim til Parma (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska B-deildarliðið Parma er búið að staðfesta endurkomu Gianluigi Buffon til félagsins.
Buffon kom upp í gegnum unglingastarfið hjá Parma og hóf atvinnumannaferilinn þar áður en hann var keyptur til Juventus rétt eftir aldamótin.

Hinn 43 ára gamli Buffon er goðsögn í knattspyrnuheiminum og var aðalmarkvörður Juventus og ítalska landsliðsins í næstum því tvo áratugi.

Parma féll niður úr Serie A í vor og verður áhugavert að fylgjast með byrjunarliðsbaráttu Buffon og Luigi Sepe.

Buffon skrifar undir samning til 2023 og verður því markvörður Parma þar til hann verður 45 ára gamall.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.