Það vakti athygli í vikunni þegar Cristiano Ronaldo, leikmaður Portúgals, færði kókflöskur af borðinu á blaðamannafundi eftir leik við Ungverjaland.
„Drekkið vatn," sagði Ronaldo og færði um tvær flöskur til hliðar svo þær sáust ekki í mynd.
Paul Pogba, leikmaður Frakklands, gerði það sama og Ronaldo en hann færði þá Heineken bjórflösku.
Andriyi Yarmolenko, leikmaður Úkraínu, ákvað að skemmta sér á blaðamannafundi í dag eftir sigur Úkraínu á Norður-Makedóníu á EM.
Yarmolenko gerði öfugt við bæði Pogba og Ronaldo en hann færði flöskurnar svo þær sáust betur í mynd.
„Hafið samband við mig. Coca Cola og Heineken heyrið í mér!" sagði Yarmolenko og fór að skellihlæja.
Ansi skondið atvik sem má sjá hér fyrir neðan.
“Coca-Cola and Heineken… please contact me!”
— Hayters TV (@HaytersTV) June 17, 2021
Andriy Yarmolenko saw what Cristiano Ronaldo did and reversed it 😂🔄 pic.twitter.com/koH8o8TCx9
Athugasemdir